22.9.2006 | 08:32
9.000 manna vinnustaður!
Suma daga getur maður hlegið meira að sjálfum sér en aðra daga. Ég hitti tvo samnemendur mína úr FÁ upp í HÍ og tókum við tal saman. Við fórum síðan að velta fyrir okkur hvað við hefðum hitt fáa FÁ-inga síðan við byrjuðum í skólanum, þau byrjuðu nú bara í haust ;), en ég er búin að vera þarna í eitt ár.
Við komumst nú að hinum ýmsu niðurstöðum í þessu mikilvæga umræðuefni hehe. Nú áðan þegar ég var að ljúka við að renna niður síðasta kaffisopanum í kaffiumferð númer eitt þá áttaði ég mig skyndilega á því að það vinna u.þ.b. 9.000 manns í HÍ, nemendur og starfsmenn skólans.
Ég bjó í 700 manna þorpi í 17 ár og man nú ekki eftir einum degi þar sem ég hitti þá alla sama daginn. Ég kom nokkrum sinnum til Húsavíkur og stundaði P-nám við Menntaskólann á Akureyri og aldrei hefði látið mér detta í hug að það væri eitthvað athugavert við það þó að ég hitti ekki Sigga og Stínu í heila viku.
Jú jú fólkið er auðvitað dreifðara, en það er samt bráðfindið hvað ég finn fyrir mikilli nálægð í HÍ því það hefur sannarlega vikið mig til umhugsunar afhverju þessi og hinn eru ekki á staðnum hahahaha. Mér líður einfaldlega svo vel í þessu samfélagi. Þjóðarbókhlaðan, Oddi, Háskólabíó og svo auðvitað kaffistofa Kaffitárs í þjóðminjasafni eru eins og mitt annað heimili.
Þessa staði sækja í meirihluta sömu nemendur sem ég er auðvitað alltaf að hitta. Ég ætti ef til vill að skjótast út í Lögberg, Nýjagarð, Öskju eða á aðra staði ef til vill eru þeir sem ég sakna að sjá bara þar öllum stundum.
Ég hitti einmitt tvo nemendur úr FÁ í aðalbyggingu HÍ í vor þegar ég steig út fyrir Sálfræðiskorina og tók tvo valáfanga við Heimspekiskor. Þau voru bæði í guðfræðideildinnin :)
Jæja búin með kaffið og pásuna þá er best að setja í iðjusama gírinn í von um að vera ekki gripin fyrir of hraðann akstur. Ég þarf að komast yfir 3 stór verkefni í dag og virkilega ná tökum á próffræðinni og svo er undirbún ingur fyrir próf í hugfræði!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Leiðin að markmiðinu, Vinir og fjölskylda, Vísindi og fræði | Facebook
Tenglar
Heimasíður
Heimasíður til fróðleiks og skemmtunar
- Lifeðlisleg sálarfræði Spennandi rannsóknir
- Mind and Life Áhugavert
- Vísindagreinar á PubMed
- Okala foundation Kanadískt stryktarfélag fyrir fátæk börn í Camroon í Afríku
Nýjustu færslurnar
- Hálauna eða láglaunaþjóð?
- Hin nýja ríkisstjórn gerir allt til að rýra eignarhald sjávarútvegsfyrirtækja á auðlindum Íslands til að auðvelda take over fyrir EU.
- FEÐGARNIR ?
- Gæti þetta verið eitthvað sem að allir jarðarbúar mættu leggja meiri áherslu á; AÐ FRAMLEIÐA ÁBURÐ / NÆRINGU fyrir allar innijurtir:
- FERILL ÞESSA MÁLS HJÁ NÚVERANDI DÓMSMÁLARÁÐHERRA ER SÍÐUR EN SVO HENNI TIL FRAMDRÁTTAR......
Athugasemdir
Já, háskólasvæðið er virkilega notalegt umhverfi, mjög þægilegt allt saman. Mér finnst líka ágætt að maður þarf að fara út fyrir dyr til að komast á milli staða, þá er _pínu_ hreyfing og ferskt loft (auk þess sem maður er þá meðvitaðri um hversu hratt dagurinn líður! :P)
Svo er þetta með andlitin... þekki þetta vel - þekkti þetta OF vel í gamla skólanum mínum (~250 manns) en í HÍ er þetta mátulegt ;) Og svo eru sumir karakterarnir á svæðinu æði...
Er sjálfur í sálfræðinni, á fyrsta ári, sjáumst kannski (einhverntímann) ... ;)
Guðmundur D. Haraldsson (IP-tala skráð) 22.9.2006 kl. 23:33
En gaman að heyra frá þér og velkominn í hópinn! Ég hef nú verið að velta fyrir mér breytingunni sem verður þegar háskólatorgið verður tilbúið (ég ætti nú auðvitað frekar að staðsetja mig í núinu, mér skilst að það muni tengja saman byggingarnar austan við Suðurgötuna. Nýnemar í Sálfræði verða nú áfram í Háskólabíó, því þetta er svo stór hópur. Mig minnir að við höfum verið rúmlega 280. Hvað eruð þið mörg núna?
Já það er svolítill munur á stærð skólanna!
Pálína Erna Ásgeirsdóttir, 23.9.2006 kl. 09:19
Ég held að við höfum við í kringum 200... eitthvað er farið að fækka í hópnum núna sýnist mér þó. Það var svona um það bil troðið í háskólabíói fyrst, en núna er etv. þriðja hvert sæti laust. Svolítið spúkí!
Guðmundur D. Haraldsson (IP-tala skráð) 26.9.2006 kl. 18:16
Já þetta var líka svona í fyrra og það heldur áfram að fækka eftir tvö fyrstu hlutaprófin í almennunni. Eitt gullkorn fyrir almennuna. Mæta í kjallarann hjá Vöku ef að hún er að bjóða upp á fyrirspurnar eða spjall tíma. Hún kann þessa bók utanað og það gagnaðist held ég flestum sem mættu hjá henni. Við vorum samt bara svona 12-15 manns af öllum þessum fjölda!
Pálína Erna Ásgeirsdóttir, 26.9.2006 kl. 19:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.