Leita í fréttum mbl.is

Gat ég sleppt þessu?

Ég stóðst ekki freistinguna. Það er alltaf svo gott að brosa svo ég tali nú ekki um hve gaman er af því ;) Ég fékk þennan skondna lista héðan

Vonandi dregur hann bros fram á andlit þitt eins og mitt.

  • Betra er að ganga fram af fólki en björgum.
  • Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn.
  • Léttara er að sóla sig en skó.
  • Betri er einn fugl í sósu en tveir í frysti.
  • Ekki er aðfangadagur án jóla
  • Blankur er snauður maður.
  • Lengi lifa gamlar hræður.
  • Betra er langlífi en harðlífi.
  • Sá hlær oft sem víða hlær.
  • Margur sefur yfir sig sem vaknar ekki á réttum tíma.
  • Rangt er alltaf rangt, það er rétt.
  • Margur hefur farið flatt á hálum ís
  • Sjaldan er góður matur of oft tugginn.
  • Heima er best í hófi.
  • Betri eru læti en ranglæti
  • Betri er uppgangur en niðurgangur.
  • Oft er virtur maður ekki virtur viðlits.
  • Enginn veit sína kæfuna fyrr en öll er
  • Betra er að standa á eigin fótum en annarra.
  • Þegar neyðin er stærst er hjálpin fjærst.
  • Oft er grafinn maður dáinn.
  • Oft veldur lítill stóll þungum rassi.
  • Oft er bankalán ólán í láni.
  • Oft eru læknar með lífið í lúkunum.
  • Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur frestað lengur.
  • Enginn verður óbarinn boxari.
  • Oft er dvergurinn í lægð.
  • Einsdæmi er að dæmigerðar dæmisögur séu dæmdar dæmalausar.
  • Sjaldan fellur gengið langt frá krónunni.
  • Illu er best ólokið.
  • Fátt smátt gerir lítið eitt eða ekki neitt.
  • Ekki dugar að drepast.
  • Eitt sinn skal hver fæðast.
  • Sjaldan fellur róninn langt frá flöskunni.
  • Blindur er sjónlaus maður.
  • Bændur eru bændum verstir og neytendum líka.
  • Eftir höfðinu dansar limurinn.
  • Flasa er skalla næst.
  • Margur slökkviliðsmaðurinn er eldklár.
  • Margur geispar golunni í blankalogni.
  • Sjaldan fara sköllóttir í hár saman.
  • Oft eru bílstjórar útkeyrðir.
  • Betra er að vera sí-virðulegur en svívirðilegur.
  • Margur fer yfir Strikið - í Kaupmannahöfn
  • Oft fýkur í menn sem gera veður útaf öllu.
  • Flestar gleðikonur hafa í sig og á.
  • Fiskisagan flýgur en fiskimaðurinn lýgur.
  • Oft láta bensínafgreiðslumenn dæluna ganga.
  • Betra er að hlaupa í spik en kekki.
  • Nakinn er klæðalaus maður.
  • Margur miljónamæringurinn á ekki baun í bala - bara peninga.
  • Sjaldan eiga fiskar fótum fjör að launa.
  • Minkar eru bestu skinn.
  • Margur nautabaninn sleppur fyrir horn.
  • Betra er að drepa tímann en sjálfan sig.
  • Betra er að ná áfanga en að ná fanga.
  • Margur leggur "mat" á disk.
  • Hungraður maður gerir sér mat úr öllu.
  • Betra er að vera eltur en úreltur.
  • Oft kemst magur maður í feitt.
  • Oft eru lík fremur líkleg.
  • Betra er áfengi en áfangi.
  • Ei var hátíð fátíð í þátíð.
  • Margur boxarinn á undir högg að sækja.
  • Betri eru kynórar en tenórar.
  • Betra er að sofa hjá en sitja hjá.
  • Oft verða slökkviliðsmenn logandi hræddir.
  • Til þess eru vítin að skora úr þeim.
  • Oft fer bakarinn í köku, ef honum er gefið á snúðinn.
  • Auðveldara er að fá leigt í miðbænum en guðanna bænum.
  • Oft fara hommar á bak við menn.
  • Oft eru dáin hjón lík.
  • Hagstæðara er að borga með glöðu geði en peningum.
  • Betra er að fara á kostum en taugum.
  • Greidd skuld, glatað fé.
  • Margri nunnu er "ábótavant".
  • Margur bílstjórinn ofkeyrir sig.
  • Oft hrekkur bruggarinn í kút.
  • Margur bridsspilarinn lætur slag standa.
  • Oft er lag engu lagi líkt.
  • Oft svarar bakarinn snúðugt.
  • Betri er utanför en útför.
  • Margur fær sig fullsaddan af hungri.
  • Það er gömul lumma að heitar lummur seljist eins og heitar lummur.
  • Oft eru bílstjórar vel á veg komnir.
  • Oft fara bændur út um þúfur.
  • Víða er þvottur brotinn.
  • Oft fer presturinn út í aðra sálma.
  • Betra er að teyga sopann en teygja lopann
  • Margur bóndinn dregur dilk á eftir sér.

 Það ætti nú einhver snillingurinn að safna svona skemmtilegheitum í bók og gefa út!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Sæmundsdóttir

Ha ha þetta er þræl skemmtilegt. Ég sá einhverstaðar en hvar, man ég ekki, og það voru mismæli íþróttafréttamanna.

Sigrún Sæmundsdóttir, 22.9.2006 kl. 12:21

2 Smámynd: Sigrún Sæmundsdóttir

Jæja krakkar, þá er það staðfest og komið á blað

Dansleikur með Á móti Sól með Magna ásamt Dilönu

MAGNAður dansleikur með the Rockstar stjörnunum Magna og Dilönu verður á Broadway þann 30. september 2006.

Fjölskylduskemmtun fyrr um daginn kl. 15.

Miðasalan hefst á mánudaginn kl. 13:00. Aldurstakmark á ballið um kvöldið er 18 ára.

Miðaverð er 2.500 kr.

Sigrún Sæmundsdóttir, 22.9.2006 kl. 12:32

3 Smámynd: Pálína Erna Ásgeirsdóttir

Takk fyrir upplýsingarnar, nú þarf ég bara að gera upp við mig hvort ég skelli mér á fjölskylduskemmtun eða ball!

Miðasalan hefst á mánudaginn ég henti inn nýrri bloggfærslu með upplýsingum af heimasíðu Broadways ;)

Pálína Erna Ásgeirsdóttir, 22.9.2006 kl. 13:20

4 Smámynd: Pálína Erna Ásgeirsdóttir

hum hehe ein aðeins of fljót á sér (ein í framan eins og kvöldsólin, hóst, hóst) Ég flýtti mér svo mikið að lesa þetta að ég sá ekki hvenær miðalsalan hefst. Það fer ekkert á milli mála hún hefst á mánudaginn ef þið vorðu ekki búin að taka eftir því hahahaha

Pálína Erna Ásgeirsdóttir, 22.9.2006 kl. 13:22

5 Smámynd: Birna M

Þessi er æðisleg. Takk fyrir.

Birna M, 22.9.2006 kl. 20:15

6 Smámynd: Pálína Erna Ásgeirsdóttir

Birna á ekki að skella sér á Broadway? Mig langar mikið til að hitta þig ;)

Pálína Erna Ásgeirsdóttir, 22.9.2006 kl. 21:06

7 Smámynd: Pálína Erna Ásgeirsdóttir

hahaha

Pálína Erna Ásgeirsdóttir, 23.9.2006 kl. 09:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Pálína Erna Ásgeirsdóttir
Pálína Erna Ásgeirsdóttir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband