15.7.2006 | 17:01
Á inniskónum í sturtu ;)
Það er stórhættulegt að hreyfa við því sem liggur í fortíðinni ;) Jæja .... hum...... gamlar minningar vilja nefnilega skjótast upp með sem einskonar viðhengi.
það var hér um árið að ég keypti mér "takkaskó" nei, nei ekki þannig takkaskó heldur þessa sem sumir kalla nuddskó. þeir eru úr einhverskonar gúmmíi. Takkar bæði upp og niður úr sólanum. Verst að þetta virðist ekki vera til á Íslandi lengur en ég fílaði það vel að ganga um í þessum skóm.
það vildi safnast ryk á milli takkanna. Ég tók því til þeirra ráða að þegar ég fór í sturtu þá fór ég alltaf í skónum og þvoði þá í leiðinni.
Mánuðir og ár liðu. Hegðun mín var orðin nokkuð stöðug. Ég vakna einn morguninn og það stendur til að fara í langferð til Bretlands. Ég fæ mér kaffi eins og venjulega og dríf mig í sturtu. þar sem að ég er nokkur söngfugl og ein af þeim sem sýng í sturtu þá hófust nú miklir tónleikar.
Allt í einu tek ég eftir því að ég er eitthvað þung til fótanna ????? það líður nokkur stund sem ég nota til þess að lyfta fótunum svona á víxl þar ti lað lokum að ég lít niður. ..........
Oh my God, þarna blasa þá við mér hanskaskinns töfflurnar mínar !!!!!!!!!!! og eftir sjokkið þá brjálast ég úr hlátri. ég fæ þvíklíka hláturkastið að fjölskyldumeðlimir koma einn af öðrum til að athuga hvort ekki sé allt í lagi með mig?
ég reyni allt hvað ég get til þess að fræða þá um hvað sé í gangi en allt kemur fyrir ekki . ég er ekki fyrr búin með hugsa orðið sem á að sleppa út úr mér en að ég skelli upp úr á ný....
Hanskaskinnskórnir m+inir breytust í grjótharðar garðtöfflur...... en það var ekki laust við að lítið kímið bros læddist fram á varir mér þegar ég leit fyrrum fagrar töfflur mínar komnar með nýtt hlutverk.
Já gaktu hægt um gleðinnar dyr og gá að þér, því að enginn veit sína ævina fyrr en öll er ;)
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Ferðalög, Skondnar uppákomur, Vinir og fjölskylda | Facebook
Tenglar
Heimasíður
Heimasíður til fróðleiks og skemmtunar
- Lifeðlisleg sálarfræði Spennandi rannsóknir
- Mind and Life Áhugavert
- Vísindagreinar á PubMed
- Okala foundation Kanadískt stryktarfélag fyrir fátæk börn í Camroon í Afríku
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.