21.12.2006 | 09:10
Man einhver eftir svona veðri í desember?
Þá er ég komin í gang, búin að kúpla yfir í heimilisgírinn og farin að lesa fréttirnar ;) Það er vægast sagt einkennilegt að taka aftur þátt í hinu gamla hefðbundna lífi sem ég lifði í morg ár, vægast sagt skrítið! Ég var að renna yfir fréttir síðustu daga og ég man nú ekki hve margar þær vour sem fjölluðu um veðrið :)
Ég varð eitt stórt spurningarmerki hum hefur eitthvað verið að veðrinu????? Ekkert smá sem ég hef verið niðursokkin síðustu vikurnar enda fór ég stundum ekkert út í eina 5 daga eða svo. Ég hef líka hugsað um það hvað ég er rik að eiga fjölskylduna mína og tengdaforeldrana. Allt þetta fólk á sinn þátt í því hvað ég gat lesið mikið, einangrað mig frá umheiminum :) umborðið mig og skapað mér tækifæri til þess að geta fyllt heilabörkinn af þeim upplýsingum sem ég síðan þurfti að koma frá mér á prófblaði. Þakklæti og þakklæti er mér efst í huga.
En ég var svo hissa þegar ég las fréttirnar af öllu þessu vatnsveðri, jújú það hefur líka verið hvasssst í garðinum heima hjá mér og ég hef þurft að nota vinnukonurnar þegar ég er að keyra bílinn en að ööðru leyti þá fór veðrið bara fram hjá mér :)
Ég man þó ekki eftir veðri eins og því sem ég les um í fréttunum hvorki hér í Reykjavík í september né á Vopnafirði þegar ég bjó þar. Á Vopnafirði kom það þó fyrir að hitinn færi í 15 stig í janúar en ég man ekki eftir svona vatnsveðri á þessum árstíma síðan ég fæddist????
Nú ætla ég að halda áfram að koma jólunum í húsið mitt en hingað inn ætla ég að kíkja í pásunum mínum og lesa blogg vina minna hér sem mér þykir nú bara orðið vænt um :)
Vegfarendur varaðir við vatnavöxtum víða um land | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Ferðalög | Breytt s.d. kl. 11:21 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 71769
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Heimasíður
Heimasíður til fróðleiks og skemmtunar
- Lifeðlisleg sálarfræði Spennandi rannsóknir
- Mind and Life Áhugavert
- Vísindagreinar á PubMed
- Okala foundation Kanadískt stryktarfélag fyrir fátæk börn í Camroon í Afríku
Athugasemdir
Man heldur ekki eftir svona veðri í desember. En það er nú ekki að marka. Maður man ekki allt. Gott að þú skulir eiga svona góða fjölskyldu. Það er fyrir öllu.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 21.12.2006 kl. 12:31
Hér fyrir norðan þekkja menn ekki svona á þessum tíma. Rigning í morgun og hiti en um kl 12 á hádegi komið frostskel á jörð
Sigrún Sæmundsdóttir, 21.12.2006 kl. 15:00
greinileg breyting á veðri...
Ólafur fannberg, 22.12.2006 kl. 08:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.