7.11.2006 | 18:10
Ætli margir hafi hugsað eins og ég?
Ég reyndi allt til að ná í miða strax upp úr hádegi en fékk au skilaboð á midi.is að engir miðar væru til sölu. Ég gafst á endanum upp en þótti samt skrítið að allir miðar væru búnir rétt upp úr hádegi. Dagurinn leið og ég sendi dóttur minni og samáhugamanni fyrir tónleikunum sms að ég hafi því miður ekki náð í neina miða buhunhhu.
Svo leið dagurinn og komið að kveldi þegar mín ákvað að prófa einu sinni enn bara svona að gamni mínu og viti menn þá gekk þetta bara smurt og við mæðgurnar getum staðið saman og rifjað upp skemmtilegheitin frá því í sumar og haust.
Ef til vill voru fleiri eins og ég bara héldu að allir miðar væru búnir þegar álagið á tölvukerfinu var bara svona mikið ;)
Miðar á Rock Star tónleika seljast hratt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Tónlist | Facebook
Af mbl.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Heimasíður
Heimasíður til fróðleiks og skemmtunar
- Lifeðlisleg sálarfræði Spennandi rannsóknir
- Mind and Life Áhugavert
- Vísindagreinar á PubMed
- Okala foundation Kanadískt stryktarfélag fyrir fátæk börn í Camroon í Afríku
Athugasemdir
Frekar fyndið að hugsa til þess, ef tölvukerfið ekki hefði komið í lag.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.11.2006 kl. 18:28
það var sama vandamálið á sölustöðum út á landi. Tölvukerfið var erfitt hjá BT. það hrundi af og til. Ég heyrði í vinkonu minni í dag og það virðist vera svo að hún náði miða í stúku á sölustað í Reykjavík eftir að ég keypti mína miða í stæði,´þá sagði talvan að það væri uppselt í stúku. Ég hringdi í hana er ég var komin út hjá BT og þá var hún akkurat að borga stúkumiða. En hvað með það, ég fæ að hlusta á Húsbandið, og kemst með mínum dætrum. Ég var var við að það voru aðilar sem hættu við að kaupa, lögðu ekki í að vera í stæði, fólk á besta aldri.
Sigrún Sæmundsdóttir, 7.11.2006 kl. 20:19
Þá hefur þú gert nákvæmlega eins og ég. Ég gafst upp eftir einn og hálfan til tvo tíma, kom bara meldingin ekki opið fyrir sölu og útrunnir miðar, svo reyndi ég um fjögurleytið og þá rann ég í gegn og fékk tvo miða með glans. En bara í stæði. Svo við hittumst í höllinni Pálína mín;)
Birna M, 8.11.2006 kl. 13:34
Tja hver veit nema við hittumst þarna öll sem eitt eða alla vegna allar sem ein hehe
Pálína Erna Ásgeirsdóttir, 8.11.2006 kl. 21:20
Varð að setja hér inn link sem mér var sendur´á e-mail frá USA og beðin að kjósa ha ha http://magnirocks.myrockinprofile.com/ Magni er í 8 sæti þarna undir best-emerging-band/
http://www.myspace.com/magnirocks blogg sem mér var líka sent
Sigrún Sæmundsdóttir, 12.11.2006 kl. 20:28
Heyrðu kona! Þetta eru alltof margir dagar frá síðasta bloggi! ;)
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 21.11.2006 kl. 17:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.