6.8.2006 | 10:29
Hvað var málið?
Ég var að hlusta á upptöku sem var tekin upp í boði þar sem 20 manns voru samankomnir. Hver virtist tala upp í annan og það var verulega erfitt og þreytandi að hlusta á þetta. Ég var á staðnum og tók sannarlega ekki eftir þessum graut á meðan ég var þar.
Hvað var málið?
Þetta gerðist fyrir nokkru síðan en í gær var ég að lesa Scientific American Mind :) og þar var einmitt grein um það hvernig við einbeitum okkur að einhverju ákveðnu og horfum eða hlustum framhjá öllu hinu. Þetta á við til dæmis á samkomum þar sem margir eru að tala í einu. Okkur tekst að einbeta okkur svo vel að við eigum ekki í nokkrum vandræðum með að heyra hvað viðkomandi er að segja.
Hins vegar ef að þú værir með upptökutæki þá er ekki hægt að stilla það (svo ég viti ;)) inn á eina manneskju heldur tekur það upp í jafnmiklum styrk raddir allra sem næstir eru. Auðvitað ætti maður ekki að vera hissa á þessu en mér fannst þetta samt svo fyndið.
Ég hef oft lent í þessu og er ágætlega æfð (með öll börnin mín) í því að einbeita mér að einhverju ákveðnu og frá einhverju öðru. Það er einhvernvegin þannig að mér eins og mörgum öðrum finnst þetta bara svo sjálfsagt og erum ekkert að spá í það hvað manneskjan er mikið undur!!!!
Nú ligni ég aftur augunum, hversu stórkestlegt er að vera HUMAN (ég þekki auðvitað ekkert annað ;))
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Menning og listir, Lífstíll, Dægurmál, Vinir og fjölskylda, Vísindi og fræði, Stjórnmál og samfélag | Facebook
Tenglar
Heimasíður
Heimasíður til fróðleiks og skemmtunar
- Lifeðlisleg sálarfræði Spennandi rannsóknir
- Mind and Life Áhugavert
- Vísindagreinar á PubMed
- Okala foundation Kanadískt stryktarfélag fyrir fátæk börn í Camroon í Afríku
Nýjustu færslurnar
- Hugur Einhverfra!!!
- Umsóknarstjórnin þegir
- Þetta hlýtur að vera aðal málið; að leyfa handfærabátum að veiða ótakmarkað utan kerfa. Handfæraveiðar eru þannig vistvænar veiðar að þær skaða ekki botninnn með þungum trollum og þær veiðar munu ekki höggva nein skörð í stofninn:
- Komum í veg fyrir ótímabær dauðsföll og þjáningar
- ESB sýnir Íslandi klærnar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.