1.7.2006 | 11:14
Hvor valtar yfir hvorn?
Þetta verður spennandi sumar jafnvel þó ekki komi til sumarsmellur kvikmyndanna. En ég get ekki neitað því að mér finnst gaman að líða inn í heim þeirra og gleyma mér þar stundarkorn. Það er nú svo fyndið að þegar ég er að læra mikið til dæmis fyrir próf þá er þvílíka hvíldin að setjast niður og horfa á góða mynd hvort sem er heima eða heiman;)
Ég hef hlakkað til að berja sjóræningjann á karabíska hafinu augum, en ég var ekkert þannig afar spennt fyrir ofurmenninu. Súpermann er samt ágætis afþreying en sjóræninginn fyndinn og ég fíla það að hlæja...
Nú var ég að lesa yfirlýsingar gagnrýnenda sem hafa séð myndina og það kitlaði nú ofurmannstaugarnar í mér. Ég spái því nú samt að sjóræninginn hafi vinninginn en það væri nú ekki ónýtt ef ofurmaðurinn myndi sjarma mig svo upp úr skónum að hjá mér yrði hann semllur sumarsins!
Sem sagt alltaf eitthvað spennandi til að hlakka til,) Ég get varla beðið eftir morgundeginum og þ, morgundeginum og.......
Ofurmennið fær góða dóma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Menning og listir, Dægurmál, Vinir og fjölskylda, Kvikmyndir | Facebook
Tenglar
Heimasíður
Heimasíður til fróðleiks og skemmtunar
- Lifeðlisleg sálarfræði Spennandi rannsóknir
- Mind and Life Áhugavert
- Vísindagreinar á PubMed
- Okala foundation Kanadískt stryktarfélag fyrir fátæk börn í Camroon í Afríku
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.