Leita í fréttum mbl.is

Þetta gengur auðvitað ekki!

Ég hef haft svo mikið að gera að ég hef ekki haft eina mínútu afgangs til þess að blogga eða heimsækja bloggvini. ´Nú er ég í prófum 2 búin og 2 eftir þannig að enn er allt á fullu hjá mér. Ég stefni nú ótrauð á meira blogg og bloggvinaheimsóknir (sakna þess að hafa ekki litið inn hjá ykkur) en svona er Ísland í dag.

Það er ekki tekið út með sitjandi sældinni að stunda háskólanám við HÍ og vera í 18 einingum! Verst þykir mér að geta ekki tekið þátt í pólitískum umræðum hér á blogginu en ég fylgist vel með í sjónvarpinu og er það ein af ástæðunum fyrir því hve lítið ég hef látið sjá mig hér. 

Ég er nefnilega vís til með að týna mér í því og það mun pottþétt koma niður á einkunnum mínum svo að ég vel að sýna fyrirhyggju kýs gáfulega á kosningadaginn hehe....en tek ekki tíma í skemmtilegu umræðurnar þetta árið!

Hlakka til að komast í samband við ykkur aftur kæru vinir og vandamenn eftir 14 maí þegar prófin eru búin og ég bara að vinna :) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: percy B. Stefánsson

Hm, já ég veit að þú munt kjósa rétt 12. maí nk. enda gerum við það öll með smá mismunandi formerkjum  Gangi þér vel í prófunum kv. Percy

percy B. Stefánsson, 2.5.2007 kl. 22:55

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Gaman að sjá þig aftur.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 2.5.2007 kl. 23:12

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Gangi þér vel í prófunum, elsku Pálína! Ekki láta þig dreyma að fara að lesa blogg. Nægur tími eftir prófin ...

Guðríður Haraldsdóttir, 7.5.2007 kl. 21:10

4 Smámynd: Kolla

Skil þig svo vel, lok skólaársins eru sko ekkert auðveld. Gangi þér vel með restina :)

Kolla, 8.5.2007 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Pálína Erna Ásgeirsdóttir
Pálína Erna Ásgeirsdóttir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband