Leita í fréttum mbl.is

Láttu ekki þitt eftir liggja - deildu þessu með eins mörgum og þú getur

Eftirfarandi texta fékk ég sendan frá samnemanda mínum og bið þig að deila honum á allan þann hátt sem þér dettur í hug! 

Gefðu þér smá stund til þess að lesa þetta:
Bara á eina stofnun - héraðssjúkrahúsið í Vestfold í Noregi - koma að meðaltali 5 sjúklingar á dag með bráða heilablæðingu.
Heilablæðing ( líka nefnd Slag eða Heilablóðfall ) er í reynd þriðja helsta dánarorsök í Noregi og fellir fólk á öllum aldri - þótt aldraðir séu þar í meirihluta - Taktu nú eftir:

Það var veisla og Inga hrasaði og datt. Hún fullvissaði alla um, að allt væri í lagi með sig ( þau buðu henni að hringja í lækni ) hún hefði bara hrasað um stein af því að hún væri í nýjum skóm. Henni var hjálpað við að laga sig til og var færður matur á nýjan disk  og þrátt fyrir að hún virtist svolítið óstyrk, hélt Inga áfram að skemmta sér það sem eftir var kvöldsins.


Maðurinn hennar hringdi seinna og sagði frá því að Inga hefði verið flutt á spítalann og kl 6:00 um morguninn hefði hún verið dáin. Hún hafði fengið heilablæðingu í veislunni.


Hefði fólkið vitað hvernig maður getur þekkt einkenni heilablæðingar, væri Inga mögulega enn á lífi.....

Það tekur bara fáeinar mínútur að lesa þetta: Taugalæknir fullyrðir að fái hann sjúkling með heilablæðingu til meðferðar innan þriggja tíma geti hann afmáð allan skaða af völdum áfallsins ... Að fullu og öllu!


 Að hans sögn, felst lausn vandans í því að fólk geti borið kennsl á einkennin, fengið greiningu
og komið sjúklingnum undir viðeigandi læknishendi innan þriggja tíma.
Að bera kennsl á Heilablæðingu (Slag)
Nú segja læknar að allir geti lært að bera kennsl á heilablæðingu með því að beita þremur einföldum ráðum:
1. * Biðja manneskjuna að HLÆJA .
>>
2. * Biðja manneskjuna að LYFTA BÁÐUM HANDLEGGJUM
>>
3. * Biðja manneskjuna að SEGJA EINA EINFALDA SETNINGU
(sem er í samhengi) ( t.d. ...Sólin skín í dag).
>>
 Ef viðkomandi á í erfiðleikum með eitthvert þessara atriða -
hringið þá strax í neyðarnúmerið 112 og lýsið einkennunum..

Hjartasérfræðingur segir að ef allir sem fá þennan tölvupóst, senda
hann áfram á 10 aðra, getir þú að minnsta kosti reiknað með því að einu mannslífi verði
bjargað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Takk fyrir þetta

Jórunn Sigurbergsdóttir , 19.1.2008 kl. 20:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Pálína Erna Ásgeirsdóttir
Pálína Erna Ásgeirsdóttir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband